JÓL Á RÉTTUM TÍMA

Fjórða árið í röð fer þessi
síða í loftið og er henni sem fyrr
ætlað að
mótmæla ótímabærum
jólaundirbúningi. Því mér finnst
óþolandi þegar
fyrirtæki byrja að minna okkur neytendur á
jólin í október og nóvember.
Þetta eyðileggur jólastemmninguna og margir verða
orðnir dauðþreyttir á
jólunum þegar þau loks koma. Það er alveg
nóg, finnst mér, að byrja
jólaundirbúninginn í desember eða fyrsta
sunnudag í aðventu.
Á Svarta listanum hér fyrir
neðan eru fyrirtæki og auglýsendur sem byrja að minna á jólin fyrir
þann tíma. Listinn er ekki tæmandi og eflaust á hann eftir að stækka
eftir
því sem tíminn líður.
Ég ætla að reyna að sniðganga fyrirtækin og vörumerkin sem eru á
listanum a.m.k. þangað til í desember og vona að aðrir geri slíkt hið
sama, því ég er örugglega ekki einn um þessa skoðun.
|
SVARTI LISTINN 2007: A4: Auglýsir jólaföndurvörur í Fréttablaðinu 26. október Blómaval: Opnar jólaland 27. október (Sjá auglýsingu í Fbl. sama dag) Frón: Byrjað að selja jólapiparkökur seinnipart október Garðheimar: Auglýsir (jóla)ljósaseríur í Fbl. 27. október Hagkaup: Byrjað að selja/stilla upp jólavörum og skrauti 16. október Hilton: Auglýsing um jólahlaðborð í Markaðnum (Fréttablaðið) 3. október Húsasmiðjan: Opnar Jólaland 27. október (Sjá auglýsingu í Fbl. sama dag) Ikea: Jólaauglýsingar byrja 18. október Kókómjólk: Komin í jólaumbúðir um miðjan október Skíðaskálinn Hveradölum: Auglýsing um jólahlaðborð í Fréttablaðinu 10. október Tolli.net: Auglýsir jólagjafir 3. október Ölgerðin Egill Skallagrímsson: Byrjað að selja jólaöl og Malt-Appelsínblöndu seinnipart október Nýmjólk og Léttmjólk: Komnar í jólaumbúðir um miðjan nóvember Kringlan: Orðin jólaskreytt um miðjan nóvember Tiger: Gefur út jólabækling 13. nóvember |
Sjálfsagt eiga einhverjar auglýsingar
eftir að fara framhjá mér.
Sendu mér línu ef þér finnst að eitthvað vörumerki/fyrirtæki eigi heima á þessum lista.
Nokkrar athugasemdir frá fólki
sem hefur rekið
nefið hingað inn
TAKTU ÞÁTT Í MÓTMÆLUNUM:
Settu borðann á heimasíðuna þína.
Afritaðu kóðann sem er í rammanum og settu hann þangað sem þú vilt að borðinn birtist.
ATÆ 2007
Norsk samtök sem mótmæla þessu sama